Gistihúsið að Kiðafelli er staðsett rúma 30km frá Reykjavík og er í rólegu og fallegu umhverfi í Hvalfirði. Boðið er uppá gistingu allt árið um kring. Yfir sumartíman (júni – september) er boðið uppá morgunmat.
Eins er boðið uppá hestaferðir yfir sumartíman, 1-3 klst ferðir. Gistihúsið getur tekið allt að 20 manns í gistingu.
Tilvalinn gististaður fyrir fjölskyldufólk og alla þá sem njóta þess að vera í rólegu og fallegu umhverfi. Þægilegar gönguleiðir á Esju (750 m.y.s.) og Eyrarfjall (470 m.y.s.). Fjara í göngufæri. Fjölbreytt fuglalíf á svæðinu og víðar í Hvalfirði (Leiðsögn í boði).