Hótel Á, lítið sveitahótel í Hvítársíðu, einni af innsveitum Borgarfjarðar á mið-vesturlandi, á vinsælum ferðamannaslóðum. Hótelið stendur skammt frá bökkum Hvítár, jökulár sem fellur niður héraðið.
Landið sem Hótel Á tilheyrir heitir Kirkjuból sem var áður fyrr bóndabær. Hér í gamladaga var lífið ansi skrautlegt og mikið um gestagang enda bjó hér eitt þekktasta skáld Íslands, Guðmundur Böðvarsson.
Á hótelinu er glæsilegur veitingasalur, sem eitt sinn var fjós sem rúmaði 32 kýr. Vi bjóðum uppá fjölbreyttan morgunverð. Heita súpu í hádeginu, kaffi og meðlæti á daginn. Á kvöldin er í boði þriggja rétta matseðill dagsins, fisk- eða kjötréttir og grænmetisréttir.
Viðbyggingin við fjósið er svo hlaðan þar sem hey var geymt fyrir skepnurnar en nú í dag eru þar 15 hótelherbergi. Öll herbergi á Hótel Á eru með fataskápum og þeim fylgir sér baðhergi með sturtu og baðsloppum. Eru stílhrein og falleg.
Ókeypis þráðlaust netsamband í móttökunni og veitingasalnum en ekki á herbergjum.
Á Húsafelli (10 km) er lítil verslun þar sem hægt er að fá helstu nauðsynjavörur á sumrin.
Barnafoss og Hraunfossar eru báðir innan við 5 mínútna keyrslu.