Þetta umhverfisvæna farfuglaheimili á Höfn er með útsýni yfir höfnina og til Vatnajökuls. Það er með gestaeldhúsi og þvottaaðstöðu. Starfsfólkið getur aðstoðað við að skipuleggja jökla-, báts- og snjósleðaferðir.
Herbergin á Höfn Hostel eru einföld, með sameiginlegu baðherbergi og aðgangi að sameiginlegri sjónvarpsstofu. Sum herbergin henta hreyfihömluðum gestum.
Á Höfn Hostel er rúmgóður matsalur en verslanir, veitingastaðir og kaffihús bæjarins eru í 5 mínútna göngufjarlægð. Morgunverður er í boði frá miðjum maí fram í miðjan september.
Jökulsárlón er í 80 km fjarlægð frá Höfn og þjóðgarðurinn í Skaftafelli er í 131 km fjarlægð.