Við bjóðum fjölbreytta gistimöguleika á besta stað í gamla bænum í Borgarnesi. Í boði er gisting í fallegum uppgerðum húsum. Um er að ræða hefðbundið gistiheimili með herbergjum og South-Rock íbúð, 2 herbergi eldhús og bað.
• Kaupangur – aðalhús – 225 fm. 5 herbergi ýmist með sér bað eða sameiginlegri aðstöðu
• South-Rock íbúð, 2 herbergi eldhús og bað
Morgunverð geta allir gestir okkar pantað en morgunverðarhlaðborð er flesta morgna í Kaupangi milli kl. 8.00 – 10.00. Panta þarf í morgunverð fyrir kl. 18.00 deginum áður.
Gistihúsið Kaupangur býður upp á hefðbundin herbergi ýmist með sér baði eða sameiginlegu.
Gistihúsið Kaupangur býður notalegt umhverfi í mikilli nálægð við söguna en það er eitt elsta húsið í Borgarnesi, byggt 1876. Hægt er að skipuleggja skemmtilegar dagsferðir til útivistar um allt vesturland frá Borgarnesi. Egils Guesthouse er fjölskyldufyrirtæki sem leigt hefur út húsnæði frá árinu 2011.